Fnjóskdælingar í bændaferð 1945

pk-1000-6-xl1

Sigurveig Birna 1 árs í dag.

Sigurveig Birna

Sigurveig Birna er 1 árs í dag. Hún er ekki minni snillingur en Styrmir Franz bróðir hennar. Það er strax orðið ljóst að hún mun ekki láta Styrmi vaða yfir sig því stúlkan er ákveðin. Nú þarf pabbinn að fara taka sig á og læra að flétta hár og annað dúlludót því að það styttist í þær kúnstir 8-)

Þekkir einhver þessa herramenn?

Reiðmenn

 

Samkvæmt því sem stendur á bakhlið myndarinnar þá eru þetta, frá hægri:

Björn Glaumur Björnsson, Guðmundur frá Fagranesi, Sigfús Axfjörð og Friðrik frá Kraunastöðum. Þetta eru bara fjögur nöfn en mennirnir eru fimm. Getur einhver staðfest þessi nöfn og hvort að röðin sé rétt?

Guðný Friðfinnsdóttir

Guðný Friðfinnsdóttir

Ég fann þessa mynd í Ljósmyndasafni Þingeyinga. Myndina tók Silli árið 1993 af Guðnýu Friðfinnsdóttur í Fagranesi. Guðný er föðuramma Heiðu. Í sömu ferð tók Silli myndir af Fidda við störf á verkstæðinu, ég skelli þeim kannski hér inn viðtækifæri.

Konan í Eurovisionlandi, kallinn smíðar borð!

Á meðan að Heiða er í lalalandi að fylgjast með gagafólki er kallinn heima með börnin og sinnir helstu heimilisverkum. Eitt af því sem ég áorkaði í dag, fyrir utan að þvo þvott, ryksuga, skúra, fara í heimsókn og sinna börnum var að smíða þetta borð:

 

 

Háspenna lífshættaVeisluborðÚtiborð

Þetta er ekki 2007 borð. Ég smíðaði þetta úr gömlum símastaur og fjölum sem ég fékk úr bláum gámi (sorpa?). Þetta kallar maður endurvinnslu.

Nytjar

Á sunnudaginn ýtum við Styrmir úr vör og fórum út í Hrúthól. Sævaldur var með í för. Við gengum alla eyjuna og náðum 28 gæsaeggjum. Flest hreiðrin voru með 6 egg en eitt hreiðrið var með 9 egg. Við fórum líka í tangann við Eyvindarlæk og náðum 8 eggjum þar þannig að samtals rérum við heim með 36 egg.

Gæsaegg

Áður en við rérum heim rendum við fyrir fisk og fengum við 3 þokkalega urriða, einn 42 cm og tvo 36 cm. Styrmi fannst það ekki leiðinlegt að draga sinn fisk inn.

Bændaferðir

Mývetningar í Bændaferð

Mývetningar í Bændaferð

Reykdælingar í bændaferð

Reykdælingar í bændaferð

Kinnungar í bændaferð

Kinnungar í bændaferð

Aðaldælingar í bændaferð

Aðaldælingar í bændaferð

Aðaldælingar í bændaferð

Aðaldælingar í bændaferð

Styrmir Franz 5 ára í dag

Styrmir Franz að leika myndastyttu
Styrmir Franz er 5 ára í dag. Til hamingju elskan. Þú ert án nokkurs vafa mesti snillingur sem ég hef hitt. Ég gæti ekki hugsað mér skemmtilegri og yndislegri strák sem son. Hlakka mikið til að sjá þig stækka og þroskast næstu árin.

Pirrandi

NEI, mig langar ekki að vita leyndarmál þitt og NEIég ætla ekki inn á mysecret punktur is.

Fagranes - viðbætur?

fagranes